loading

Hljómskálagarðurinn

Hljómskálagarðurinn

Ný aðstaða til úti-tónleikahalds og veitingaþjónustu

Tvær nýjar byggingar reistar í Hljómskálagarðinum. Önnur til úti-tónleikahalds, hin fyrir veitinga-þjónustu.

Útivist í Hljómskálagarðinum sem hluti af bæjarlífinu. Til þess þarf að bjóða upp á þjónustu. Einnig þarf að tengja garðinn Háskólasvæðinu.

Gert var ráð fyrir í þessari uppfærslu hugmyndarinnar, að Tónlistarpallurinn yrði um 8 metrar í þvermál og um 50 m². Allar hliðar skálans yrðu opnanlegar og því hægt einnig að nota pallinn sem útsýnisskála með yfirsýn yfir Tjörnina.
Veitingaskálinn yrði um 100 m² og rúmaði um 30 viðskiptavini. Tjarnar-pallurinn sem „flyti“ yfir vatnsyfirborði Tjarnarinnar, er um 110 m² og væri honum ætlað að veita þjónustu á góðviðrisdögum fyrir allt að 40 viðskipavinum.

Útsýni frá Tjarnarskálanum er til Hljómskálans, sem og að hinum nýja Tónlistarpalli. Staðsetning hans er gerð til að vera í sem mestu návígi við Háskóla Íslands, en einnig til að mynda útsýni í átt að Miðbænum.

Náttúrudýrð aðdráttarafl fyrir mannlíf. Miðborgargarður þar sem hægt er að gæða sér á léttum veitingum í nánd við náttúruna, en á sama tíma partur af hinni stærri heild miðborgarsamfélagsins.

Tónleikahald við Tjörnina, þar sem gestir geta komið í lautarferð og notið þeirrar tónlistar og uppákoma sem í boði eru.

Afslappað umhverfi borgar-garðanna. Hljómskálagarðurinn sem „tengibraut“ milli miðborgarinnar og Háskólasvæðisins.

pdf
PDF skjal

Hljómskálagarðurinn

Flokkur

Dagsetning

október 21, 2015

Viðskiptavinur

Deila þessu verki

Miklatún

fyrra verk í flokknum:
lokið: 21 October 2015

Nánar

Sundhöll Reykjavíkur

næsta verk í flokknum:
lokið: 21 October 2015

Nánar