Miðbærinn
-Á lóðinni er lítið hús í niðurníðslu og einnig er þar sem virðist vera helmingur að heild, þar sem Laugavegur 20b hefur möguleika á samnýtingu stigagangs.
-Tillögur eru gerðar um mögulega ásýnda reitarins, þar sem gert er ráð fyrir nýtanlegu verslunarhúsnæði á fyrstu hæð nýbyggingarinnar og íbúðarhúsnæði á efri hæðum þess.
-Tillögunum var ætlað að sjá möguleika á nýtingu reitarins í samhengi við þau hús sem eru aðliggjandi reitnum og eru sýndar tvær mismunandi útgáfur af framhliðum í sömu húsumgjörð.
LAUGAVEGUR 24:
-Á lóðinni er lítið hús í niðurníðslu sem ekki nýtist vel til verslunarreksturs, né er það í góðu samhengi við gangstéttarhæð Laugavegarins.
-Tillögur eru gerðar um mögulega ásýnda reitarins, þar sem gert er ráð fyrir nýtanlegu verslunarhúsnæði á fyrstu hæð og mögulega annarri í nýbyggingunni og íbúðarhúsnæði eða skrifstofa á efri hæðum þess.
-Tillögunum var ætlað að sjá möguleika á nýtingu reitarins í samhengi við þau hús sem eru aðliggjandi reitnum og eru sýndar tvær mismunandi útgáfur af framhliðum í sömu húsumgjörð. Önnur tillagan dregur efnisval og form frá eldri byggignu til hliðar, en hin samvefur form og efnisval beggja hliðarbygginga og horfir einnig frekar til þarfa verslunar í húsinu.
-Hugmyndir um uppbyggingu reitarins, til jafnaðar við byggingarmassa byggingar Máls og Menningar við Laugaveg. Mismunandi útfærslur sýna mismunandi möguleika á nýtingu hinnar nýju byggingar.
-Síðari tillögurnar sýna nýtingu, þar sem neðsta hæð við Grettisgötu og kjallari, tengjast verslun Máls og Menningar við Laugaveg. Efri hæðir nýttar fyrir miðborgaríbúðir að mismunandi stærð.
-Samhengi er náð með tilvitninum í formgerðir húsanna í kring.


