Nauthóll
Nauthóll
Nýtt kaffihús í Nauthólsvík
Byggingunni er skipt í þrjár megin einingar; Kaffihús, Eldhús og Veitingarhús, en einnig; þjónustukjarna og lagna- / geymslukjallara.
Aðkoma er frá bílastæðum við vestur enda lóðarinnar, einnig um stíga frá útivistarstíg borgarinnar sunnan við lóðinna. Ein helsta tengin byggarinnar við umhverfið er svo af miðlægri veröndinni, sem við köllum torgið og að byggingu Háskóla Reykjavíkur. Aðföng koma að byggingunni austanverðri, um aðkomu norðan við húsið og frá bílastæðum.
Gert er ráð fyrir að byggja nýbyggingu fyrir Kaffihús og Veitingasal og að hafa þessar aðstöður sérstæðar. Á milli þessara tveggja bygginga er fyrir komið Eldhúsbyggingu sem þjónustar byggingarnar báðar og á milli þessara þriggja byggingarhluta er svo stór verönd sem nýtur skjóls af byggingunum sjálfum.
Þjónustulúgu er svo fyrir komið á kaffihúsinu aftanverðu sem afgreiða má að veröndinni og þannig að létta sé hægt á þjónustu við þá sem úti sitja, en einnig þannig að þeir sem vilja geti komið að skálanum og verslað drykki, en án þess að fara inn í byggingarnar eftir þeirri þjónustu.
Þannig er gert ráð fyrir að hið eiginlega Kaffihús verði í frambyggingunni, en ekki síður á hinni stóru verönd sem tengir byggingarnar allar og er í skjóli af þeim. Veitingasalurinn er svo notaður fyrir stærri hópa og samkvæmi, en nýtist einnig á álagstímum kaffihússins.
SAMHENGI:
Sameiginlega veita byggingarhlutarnir þrír gestum veitingahússins skjól fyrir helstu vindum, en á sama tíma opnast innrýmin, með stórum glerflötum að útsýni frá byggingunni, sem og að veröndum hennar.
Gert er ráð fyrir að byggingin verði um 510 m² ofanjarðar og um 40 m² í kjallara og því alls: 550 m² að stærð. Gert er ráð fyrir að aðstaðan rúmi um 140 gesti í sæti innandyra og um 130 sæti á veröndum.







