loading

Einholt

Einholt/Þverholt – Nýtt íbúðarhúsnæði við Einholt og Þverholt

Verkefnið skiptist í 5 fjölbýlishúsakjarna þar sem gert er ráð fyrir 264 íbúðum, samtals 25.390 m², og um 300 bílastæðum undir reitnum öllum. Gert er ráð fyrir einni inndreginni Penthousehæð ofaná hærri byggingunum tveimur.

BYGGINGARALÝSING:
-Eins og sjá má á loftmyndum og á hverfiskortum, þá er reitur sá er hér er skoðaður hluti af nokkurskonar „miðborgar-kraga“ sem umleikur hina eldri íbúabyggð Holtanna. Þessi kragi hefst við Háteigsveg, á milli Rauðarárstígs og Einholts, og heldur að innan verðu eftir Einholti og að Skipholti og að utan eftir Rauðarárstíg að Hlemm. Sagan skýrir þennan mun, með því að þarna var áður iðnaðar og þjónustuhverfi með byggingum í allt öðrum stærðarhlutföllum en íbúabyggðin sjálf. Vegna þessa teljum við ekki að eigi að breyta þeim karakter og líkja í neinu við þær stærðargráður sem gerast innan kraganns, heldur leitast við að gera þétta miðborgar byggð, líkt og er orðin til t.d. á Ölgerðarreitnum gamla, vestan Þverholts.

-Sameginlega eru lóðir á þeim reit sem hér er skoðaður eru um 8.900 m² (7.500 í eigu Keflavíkurverktaka og 1.400 í eigu Ofnasmiðjunnar.

-Að ofangreindu gefnu, er hafist handa við að gera á reitnum mjög þétta byggð, þar sem landhalli er þó nokkur og gert ráð fyrir að hann sé nýttur fyrir bílastæða-geymslur og geymslur hluta íbúða. Mismunur á hæðum Einholts og Þverholts er 2,5 – 3,5 metrar og myndi því bílageymsla mynda nokkurskonar Plaza á hæð við Einholt.

-Gert er ráð fyrir í hugmyndunum, að hin nýja byggð yrði að mest fjögurra hæða ofan á plazanu með inndreginni penthouse hæð, en þó með turn byggingum í sitt hvorum enda lóðarinnar, annars vegar átta hæðir og hinsvegar tólf hæðir, þar sem einnig er gert ráð fyrir inndreginni
penthouse-hæð.

-Götumynd Þverholts yrði því sú að eftir henni væri byggð svokölluð randbyggð, fast að lóðamörkum, en yrði þessi byggð þó með opnunum
upp á plazað, til að leyfa bæði byrtu og gangandi umferð.
Götumynd Einholts yrði opnari en sú við Þverholt. Einungis yrði um eina sérstæða byggingu að ræða, en tvær við Þverholt ofaná bílageymslum.
Í enda lóðarinnar við Hátún yrði komið fyrir átta hæða frístandandi turni ofan á plazanu og einnig yrði komið fyrir svipuðum turni í norður
enda lóðarinnar, sem er ætlað að verða tólf hæðir.

-Íbúðum lægri bygginganna er ætlað að vera blanda af einnrar og tveggja hæða íbúðum. Í byggingunum við Þverholt eru fjórar til sex íbúðir
á hæð, alls sautján íbúðir. Hæðirnar eru fjórar ofan bílgeymslu, með einungis fimmtu hæð í miðri byggingu austan megin. Í byggingunni við
Einholt eru tuttugu og fjórar íbúðir, blanda af einnrar og tveggja hæða íbúðum einnig. Fjórar til sjö íbúðir eru á hæð, alls fjórar hæðir,
með einungis fimmtu hæð í miðri byggingu vestan megin.

-Íbúðum turnbygginganna er einnig komið fyrir um einn stigagang, þar sem eru tíu íbúðir á hæð, annarsvegar á átta hæðum og hinsvegar
á tólf hæðum, samtals: eitthundrað níutíu og sex íbúðir. Einni inndreginni Penthouse hæð er svo fyrir komið ofaná hvorum turni, þar sem eru
fimm íbúðir í hvorum turni.

-Alls er gert ráð fyrir 1,25 stæðum á íbúð, í bílakjallara undir Plazanu, sem nýtir landahallann, þ.a.l. verður gert ráð fyrir um 300 bílastæðum.
Gera má ráð fyrir um 27 m² fyrir hvert bílastæði = um 8.200 m². Plaza grunnurinn er um 7.700 m² að flatarmáli og því þarf að gera ráð fyrir
um 500 m² á neðri kjallara. Á lóðinni er gert ráð fyrir um 14 gestastæðum og 11 við götu, alls 25gestastæði auk fjögurra „drop-off“ stæða við turna. Gert er ráð fyrir tveim inn/útkeyrslum í bílakjallara frá Þverholti og einnig er rampur niður frá Plaza til innkeyrslu.

SAMTALS: 264 íbúðir 25.390 m²
Turn A (suður – 83 íbúðir), Turn B (norður – 123 íbúðir), = 206 íbúðir
Hús A (24 íbúðir)og Hús B/C (2x 17= 34 íbúðir) = 58 íbúðir.

pdf
PDF skjal

Einholt

Flokkur

FjölbýliSamkeppnir

Dagsetning

október 29, 2015

Viðskiptavinur

Deila þessu verki

Akraland

fyrra verk í flokknum: Samkeppnir
lokið: 28 October 2015

Nánar

Zero

næsta verk í flokknum: Hugmyndaverk
lokið: 29 October 2015

Nánar