Miðborgarskáli
Hugmyndir að uppbyggingu í Miðborginni.
-Verkefnið var unnið innan fyrirtækisins og án viðskiptaaðila í upphafi. Verkefnið er alfarið hugarsmíð Nexus Arkitekta, en var þróað til að mæta helstu áhersluþáttum þróunaráætlunar miðborgarinnar.
-Í framhaldi af sérstakri miðborgar-sýningu á vegum Aflvaka, báðu forstöðumenn þriggja borgarstofnana; Aflvaka, Miðborgarstjórnar & Skipulagssjóðs Nexus arkitekta um að kynna verkefnið Miðborgarskáli fyrir sér á sérstökum kynningarfundi. Þetta “þríeyki” sem höfðu það hlutverk að stuðla að uppbyggingu af hálfu Reykjavíkurborgar í Miðborginni. Í framhaldi af þessari kynningu báðu sömu aðilar um frekari útfærslu á hugmyndinni fyrir sig með það fyrir augum að kynna hana enn frekar innan borgarkerfisins. Aðilar gerðu með sér munnlegan samning um þessa framhaldsvinnu/ útfærslu á hugmyndinni. Í þessari vinnu fyrir “þríeykið” voru einnig unnin ýmiskonar kynningargögn tengd viðfangsefninu.
-Í verkefninu koma fram hugmyndir, þar sem mögulega mætti nýta heilan borgarreit að mestu undir eina byggingu, sem samtengdri og blandaðri notkun. Tillögurnar snérust um að á mikilvægum miðborgarreit, væri fyrir komið aðstöðu til verslanareksturs, stærri rými jafnt og smærri, sem að hluta yrðu undir glerþaki, til að skapa rými sem kallaði á notkun í skjóli fyrir veðri og vindum. Þess ofan var gert ráð fyrir íbúðum, samanber þéttingaráform þróunaráætlunar. Hugmyndin átti einnig að skapa andrými við Laugaveg, lítið torg þar sem fólk gæti komið saman til að virða fyrir sér mannlífið.


