loading

Sundhöll Reykjavíkur

Sundhöll Reykjavíkur
Nýtt útisvæði til stuðnings hinni glæsilegu Sundhöll
Ný bygging er staðsett tvo metra frá núverandi byggingu, til að gefa andrými og til að ná birtu að búningsklefum í kjallara hennar. Tengingin er að mestu úr gleri, til að leyfa sjónlínu frá Barónsstíg eftir endilangri núverandi byggingu. Núverandi inngangi er haldið sem aðalinngangi.

Pottasvæði á Laugar-palli.
Nýtt útisvæði fyrir samfelda tengingu heitra potta, nudd-potta og busllaugar krakka í samsett í eitt heildstætt vatns-landslag. Ný þjónustubygging, með glerjaðri móttöku og veitingasölu gegn Barónsstíg. Tveim 25 metra sundbrautum er fyrir komið við suðurhlið útisvæðisins. Í hinni nýju þjónustubyggingu er fyrir komið sauna- og gufuklefum.

Heilsurækt og “Spa”.
Á neðri hæð nýbyggingarinnar er komið fyrir heilsuræktarstöð sem tengist í gegnum hið nýja þjónusturými við Barónsstíg. Heilsuræktar aðstaða er frekar séð sem “spa”, þar sem komið er fyrir; yogasal, nuddherbergjum og leirböðum, sem og nuddpottum og sauna að viðbættum “cardio”-gym.

Nýtt Útisvæði og Heilsuræktar-Spa.
Á jarðhæð í hinni nýju byggingu er opnað stórt útisvæði fyrir Sundhallargesti og komið fyrir samtengdum heitum pottum og „busl-pollum“ krakka, tveim 25 metra sundbrautum, sem og bæði gufu- og eimbaði. Í framhaldi af núverandi móttöku, sem yrði notuð áfram sem slík, er tenging yfir í nýja byggingu. Þar er komið fyrir veitingaaðstöðu í átt að Barónsstíg.

Frá þessari þjónustubyggingu er svo tenging í kjallara byggingarinnar, þar sem komið er fyrir heilsuræktarstöð sem og viðbótar búningsklefum. Gestir útisvæðisins komast leiðar sinnar eftir tveim tengingum, annars vegar sundlaugargestir, sem komast leiðar sinnar eftir brú, við austur-enda bygginganna og hinsvegar, heilsuræktargestir sem komast upp stiga í þjónustu húsinu. Innan eldri byggingarinnar er komið fyrir lyftu, til að koma á móts við þá gesti Sundhallarinnar sem eiga erfitt með að fara stigann í kjallarann. Ofan á efri tengingunni er svo fyrir komið tengingu við núverandi sólbaðsaðstöðu Sundhallarinnar. Með henni verður hægt að hringtengja hinar mismunandi aðstöður, svo sem sund- og sólbaðsaðstöðu eldri byggingarinnar og svo hið nýja útisvæði, með heitum pottum og lítilli laug, sem og hinni nýju heilsurækt.

Skoða Samkeppni-Plattar

Sundhöll Reykjavíkur

Flokkur

Dagsetning

október 21, 2015

Viðskiptavinur

Reykjavíkurborg

Deila þessu verki

Hljómskálagarðurinn

fyrra verk í flokknum:
lokið: 21 October 2015

Nánar

Gamla Höfnin og Örfirisey

næsta verk í flokknum:
lokið: 21 October 2015

Nánar