loading

Sóltún

Sóltún
Breyting á skipulagi vegna nýrrar þjónustubyggingar.

Markmið breytingarinnar er að koma þar fyrir nýbyggingu, Sóltúni 4, upp á fimm hæðir sem rúmar allt að 112 hjúkrunarrými. Einnig er gert ráð fyrir að á milli Sóltúns 2 og 4 verði tengibygging sem rúmy ýmiskonar þjónustu við byggingarnar tvær og mögulega næsta nágrenni. Í kjallara bygginganna er gert ráð fyrir að rúma frekari þjónustu og einnig stóru þjónustueldhúsi, sem og þvottahúsi.

Bílastæðum er komið fyrir framan við húsið, en bílastæði starfsmanna í bílageymslu undir núverandi stæðum Sóltúns 2.

Gert er ráð fyrir byggingu sem er á fimm hæðum og sú efsta minni til beggja endanna. Byggingin sjálf er á 1. – 5. hæð alls 7.180 m²
Tengibyggingin er um 970 m² og því er nýbyggingin alls 8.150 m².

Einnig er gert ráð fyrir kjallara undir byggingunni allri og er hann alls 3.040 m². Heildar byggingar fermetrar eru því 11.190 m², utan bílakjallara.

Á 5. hæðinni er fyrir komið tveim 10 rýma deildum, alls 20 hjúkrunarrýmum.
Á 2.-4. hæð er komið fyrir tveim 11 rýma deildum, alls 3 * 22 = 66 hjúkrunarrýmum.
Á 1. hæð er ein 11 rýma deild og ein 8 rýma dagdeild = 19 hjúkrunarrými.
Á jarðhæð er svo mögulega hægt að koma fyrir einni 7 rýma deild. Alls er því mest gert ráð fyrir 104 rýmum og 8 dagvistarrýmum = 112 Hjúkrunarrými.

pdf
PDF skjal

Sóltún

Flokkur

SkipulagÞjónustubyggingar

Dagsetning

október 21, 2015

Viðskiptavinur

Deila þessu verki

Sólberg

fyrra verk í flokknum: Skipulag
lokið: 21 October 2015

Nánar

Helgafellshverfi

næsta verk í flokknum: Skipulag
lokið: 21 October 2015

Nánar