Sólberg
Sólberg
Nýtt skipulagssvæði í Eyjafirði.
Markmið skipulagshöfunda
Við skipulag svæðisins hefur verið leitast við að mynda sólríka íbúðarbyggð með hóflegri nýtingu. Ráðgert er að byggja á svæðinu tveggja hæða glæsileg hús sem njóta sín vel á rúmgóðum lóðum.
Fyrirhuguð íbúðarhús eru staðsett þannig að útsýnis og sólar njóti vel til suðurs, vesturs og norðurs. Vegna halla á landinu og staðsetningu húsanna í skipulagi, næst útsýni vel frá öllum húsunum.
Sólbergslandið er skv. FMR um 42.000 m² og heildarstærð lóðanna er 27.646 m², 66 % landsins.
Gert er ráð fyrir að í skipulagi þessu verði sjö sjávarlóðir neðan við götu og fimm lóðir aftan við þær. Neðri húsin yrðu með aðkomu á efri hæðir, en þau efri með aðkomu á þær neðri. Með þessu, er gert ráð fyrir að neðri hæðir efri húsanna, geti haft yfirsýn yfir þau neðri, sem sitja á og í „kambi“ í landinu.
Neðri húsunum skal fyrir komið með þeim hætti að þau falli sem best að landinu og að neðri hæðir þeirra og meginhluti lóða fái skjól frá ofangreindum “kambi”. Þar sem land leyfir, er leyfilegt að lækka gólfflöt neðri hæðar, að hluta eða í heild, allt að 1.2 m.
Byggingarreitir eru hafðir rúmir, með það í huga að húsin verði aðlöguð landinu sem best og geti því verið hliðrað til að það megi gerast með sem bestum hætti. Gera má ráð fyrir að byggingar sjávarlóða verði staðsettar sem næst austari mörkum byggingarreita.
Meðaltalsfjarlægð vestustu marka byggingarreita ofangreindra sjö sjávarlóða verður um 38,9 m. frá sjávarbakkanum og minnst 35,7 m. Gert er ráð fyrirgöngustíg frá skipulagssvæðinu niður að sjó og meðfram sjávarbakkanum að vestanverðu. Lögð er áhersla á góð göngutengsl um svæðið og til næsta nágrennis.







