Te & Kaffi
Te & Kaffi – Nýjar aðalstöðvar Kaffiframleiðslufyrirtækis
Gert er ráð fyrir nýbyggingu, sem byggð er í framhaldi af núverandi framleiðsluhúsnæði: Í nýbyggingunum er fyrir komið nýju lagerhúsnæði og skrifstofum fyrirtækisins.
Hugmyndir að efnisvali er ætlað að endurspegla hina hráu vöru sem unnið er með (hrá kaffibaun) og svo endanlega söluvöru fyrirtækisins (ristað kaffi). Efnisval og undirstaða er því úr drapplituðum steinflísum og efrihlutinn úr kopar sem breytir lit eftir aldri, en að mestu brúnleitur.
Gert er ráð fyrir að um 266m² af eldri byggingu standi eftir og til viðbótar verða 517m² á 1.hæð. Efri hæð nýbyggingar verður 421m². Samtals verður þvi byggingarmagn á lóðinni 1.204m². N.hl.f. 0.72 eftir stækkun lóðar. Bílastæði á lóðinni verða 24.
Fyrsta hæð nýbyggingarinnar eru steinsteyptir veggir, loft og gólf á steyptum undirstöðum (sökklum). Veggir hæðarinnar er einangraðir utan frá og klæddir með steinflísum, gólf í verönd 2. hæðar er einangrað innan frá. Á hæðinni er aðkoma, starfsmannaaðstaða og lagerrými með vöruafgreiðslu. Frá aðkomu liggja tröppur til 2. hæðar, þar sem skrifstofur fyrirtækisins eru, sem og sölusalur. Lyfta er einnig á milli hæðanna. Stór verönd er við húsið vestanvert.
Burðarvirki 2. hæðar er stálgrind sem hvílir á steyptu burðarvirki 1. hæðar. Á milli stálgrindar er trégrind sem gluggapartí og ytri klæðning er fest í. Einangrun annarrar hæðar er lögð í grindina. Klæðning 2. hæðar er læst koparklæðning og þakefni er soðinn þakdúkur. Verönd á loftplötu 1. hæðar umlíkur 2. hæðina á norður og vesturhlið að eldri byggingu. Glerhandrið úr öryggisgleri með stálstoðum umlykur veröndina. Á hæðinni er móttaka, kynningarsalur og skrifstofur, ásamt starfsmannaaðstöðu.
Te & Kaffi – Nýjar aðalstöðvar Kaffiframleiðslufyrirtækis
Framleiðsluhús, lager og skrifstofuhúsnæði. Hugmyndir að efnisvali er ætlað að endurspegla hina hráu vöru sem unnið er með (hráa kaffibaun) og svo endanlega söluvöru fyrirtækisins (ristað kaffi). Efnisval og undirstaða er því úr drapplituðum steinflísum og efrihlutinn úr kopar sem breytir lit eftir aldri, en er að mestu brúnleitur.


