loading

Vatnsmýrin

Vatnsmýrin
Vatnsmýrin – Hugmyndasamkeppni um uppbyggingu Vatnsmýrarinnar.

-Megin markmið tillögunnar er að sýna þétta byggð í Vatnsmýrinni, þar sem samhengi við aðlyggjandi byggð og umferðaræðar er skoðað. Hin víðari umferðartengin til höfuðborgarsvæðisins sunnan Reykjavíkur er hugleidd og möguleiki á staðsetningu flugvallar.

-Innra skipulag svæðisins er fyrir komið meðfram grænni tengingu, allt frá Nauthólsvík að Hljómskálagarði, þar eru helstu umferðaræðar lækkaðar, eða land hækkað til að ná samfellu í hið græna svæði.

-Þéttri blandaðri byggð er fyrir komið meðfram hinu græna svæði og miðlægt í hinum nýja bæjarhluta. Lágri byggð er svo fyrir komið við útmörk hinnar nýju byggðar og er Skerjafjarðarbyggðin framlengd að Nauthólsvík með mögulegri smábátahöfn. Helstu stofnanir og þjónusta er við miðjukjarna hinnar nýju byggðar.

-Gert er ráð fyrir að megin samgöngutenging svæðisins verði frá horni Hringbrautar, til suðurs eftir framlengingu Njarðargötu, sem gangi undir Skerjafjörð, sem Skerjabraut, og tengist við Kópavog, Bessastaðanes og til Garðabæjar/Hafnarfjarðar. Með þessu er gert ráð fyrir þriðju megin-vegtenginu borgarinnar til suðurs. Aðrar vegtengingar eru gerðar til að tengja nálæg hverfi, í samhengi við núverandi aðaltengingar.

-Möguleiki á lestartengistöð er sýndur, sem nýtti sömu Skerjagöng og gerði þannig mögulega tengingu við Reykjanes og mögulegt framtíðarstæði flugsamgangna höfuðborgarsvæðisins, annaðhvort á Bessastaðanesi, eða sunnar/vestar á Reykjanesinu.

Unnið fyrir Reykjavíkurborg í samstarfi við og fyrir SAV arkitekta.

pdf
PDF skjal

Vatnsmýrin

Flokkur

SamkeppnirHugmyndaverk

Dagsetning

október 21, 2015

Viðskiptavinur

Reykjavíkurborg

Í samstarfi við og fyrir SAV arkitekta

Deila þessu verki

Gamla Höfnin og Örfirisey

fyrra verk í flokknum: Hugmyndaverk
lokið: 21 October 2015

Nánar

Te & Kaffi

næsta verk í flokknum: Hugmyndaverk
lokið: 21 October 2015

Nánar