Miklatún
Eitthvað fyrir alla garður
Miðgarðurinn, Leiksvið og Tónleikapallur (sumar), Bátapollur / Skautasvell (vetur), Boltavellir, Gæsluvöllur / Leiktæki, Hjólabrettasvæði, Golfflöt og Tennisvellir, Bíótjald
Kjarvalsstaðir, vatnasvæði og torg mynda saman hjarta Miklatúns, Miðgarð. Á Kjarvalsstöðum er kaffihús sem bæði gestir listsýninga og garðsins gætu notið. Frá Kjarvalsstöðum og í áttina að miðju garðsins liggja þrjú vötn sem öll eru tengd saman. Við endavatnið er svo friðsælt torg, þar sem tilvalið er að setjast niður á ferð sinni í gegnum garðinn og njóta augnabliksins. Handan við torgið má finna grillsvæði og hitatorg, sem nánar er skilgreint undir gæsluvöllur og leiktæki.
Á sviðinu geta farið fram allskyns uppákomur, og áhorfendur geta tyllt sér í brekkuna aftan við bátapollinn og notið sýninganna. Bátapollurinn er hugsaður sem grunnt vatn, sem jafnvel væri hægt að fjarlægja ef stærri viðburðir færu fram á sviðinu. Á veturna yrði bátapollinum breytt í lítið skautasvell.
Bíótjaldið er hugsað sem skjár sem gengi niður í jörðina þegar hann væri ekki í notkun. Á skjánum væri hægt að sýna m.a. bíómyndir, þætti, fræðsluefni og videolistaverk.
Börn geta bæði leikið sér á opnu svæði og á gæsluvelli. Í tengslum við leikvellina er að finna Hitatorg – torg með gashiturum, borðum og stólum og Grillsvæði – borð með innbyggðum grillum og stóla. Á hitatorginu mætti hugsa sér að á borðunum væru föst borðspil og töfl, þannig að fólk gæti mætt með t.d. taflmennina sína með sér.
Golfflöt þar sem hægt væri að æfa púttið. Þar til hliðar er að finna 2 tennisvelli. Afmarkað svæði fyrir brettafólk með flötum, gryfju og pöllum. Á Miklatúni getur fólk líka farið um á línuskautum þar sem allir stígar yrðu malbikaðir. Á íþróttasvæðinu eru 2 fótboltavellir auk körfuboltavallar. Þeir sem heldur vilja horfa á geta fylgst með af pöllunum til hliðar.


