Helgafellshverfi
Helgafellshverfi Nýtt skipulagssvæði í Mosfellsbæ
Hústýpur fyrir nýtt hverfi
Gerðar voru tillögur að hústýpum, sem bæði gætu verið á sléttri og hallandi lóð. Sumar týpur sýna stallaðar byggingar sem geta verið á byggingarreit sem leyfir einnrar hæða hús með kjallara, en að rýmin séu að fullu nýtanleg. Skissur sýna tillögur að hústýpum á lóðum, þar sem byggingarreitur leyfir tveggja hæða hús sem fylla ekki út í byggingarreit.
Project Design: unnið með Will Picken
DEILUSKIPULAGSÁFANGI II
Skipulagssvæðið liggur suð-vestan Helgafells. Það afmarkast til vesturs af núverandi byggð af Ása- og Landahverfi, til suðurs af Helgafellsbraut og til austurs af Miðsvæði Helgafells („Auga“) með fyrirhugaðri íbúðarbyggð og til norðurs af Helgafelli og svokallaðri „Helgafellstorfu“. Aðkoma að deiliskipulags- -svæðinu er frá Vesturlandsvegi um Helgafellsveg að mið-svæði, sem kvíslast síðan til norðurs og suðurs. (Sjá kort sem sýnir afmörkun svæðisins, staðsetningu og gatnakerfi). Miðsvæði Helgafells er skilgreint deiliskipulagsáfangi 1 (DSK 1). Skipulags-skilmálar þessir gilda fyrir deiliskipulagsáfanga 2 (DSK 2) á skipulagssvæði í landi Helgafells.
Helsta markmið með skipulagi þessa svæðis er, að þar rísi fjölbreytt byggð sérbýlishúsa þar sem fólk á þess kost að velja milli mismunandi húsagerða og fá húsnæði við sitt hæfi. Lögð er áhersla á, að hönnuðir nýti sér möguleika á að móta fjölbreytta byggð t.d. með hliðrunum í grunnfleti og stöllun í lóðréttum flötum húsa til þess að nýta sem best möguleika hverrar lóðar. Æskilegt er þó að gæta ákveðins samræmis, t.d. í þakformi bygginga. Leggja skal áherslu á, að öll mannvirki á svæðinu séu hönnuð þannig að þau falli sem best að landi.
Útmörk skipulagssvæðisins eru 5,96 ha. Alls verða á reitnum34 íbúðahúsalóðir
Gert er ráð fyrir 62 íbúðareiningum á reitnum. Einnig er á reitnum 1 verslunar- og þjónustulóð. Lóðastærðir eru áætlaðar:
Í einbýlishúsum er gert ráð fyrir 24 íbúðum
Í parhúsum er gert ráð fyrir 6 íbúðum
Í tvíbýlishúsum er gert ráð fyrir 32 íbúðum
DEILUSKIPULAGSÁFANGI III
Skipulagssvæðið liggur suð-vestan Helgafells. Það afmarkast til vesturs af Helgafellsbraut, til suðurs af verndarsvæði Varmár, til norðurs af Miðsvæði Helgafells („Auga“) með fyrirhugaðri íbúðarbyggð og til austurs af grænu útivistarsvæði umhverfis Sauðhól.
Aðkoma að deiliskipulagssvæðinu er frá Vesturlandsvegi um Helgafellsveg að mið-svæði, sem kvíslast síðan til norðurs og suðurs. (Sjá kort sem sýnir afmörkun svæðisins, staðsetningu og gatnakerfi). Skipulags-skilmálar þessir gilda fyrir deiliskipulagsáfanga 3 (DSK 3) á skipulagssvæði í landi Helgafells.
Helsta markmið með skipulagi þessa svæðis er, að þar rísi fjölbreytt byggð sérbýlishúsa þar sem fólk á þess kost að velja milli mismunandi húsagerða og fá húsnæði við sitt hæfi. Lögð er áhersla á, að hönnuðir nýti sér möguleika á að móta fjölbreytta byggð t.d. með hliðrunum í grunnfleti og stöllun í lóðréttum flötum húsa til þess að nýta sem best möguleika hverrar lóðar. Æskilegt er þó að gæta ákveðins samræmis, t.d. í þakformi bygginga. Leggja skal áherslu á, að öll mannvirki á svæðinu séu hönnuð þannig að þau falli sem best að landi.
Heildarstærð Deiliskipulagsáfanga 3 er 14,61 ha. Alls verða á reitnum 57 íbúðahúsalóðir. Gert er ráð fyrir 113 íbúðareiningum á reitnum. Byggðafleki svæðisins er 8,48 ha. Heildarstærð lóða er 65.046 m²
Nýting í Deiliskipulagsáfanga 3:
Einbýlishús 43 íbúðir 38,1 %
Parhús 10 íbúðir 8,8 %
Raðhús 4 íbúðir 3,5 %
Fjórbýlishús 12 íbúðir 10,6 %
Klasar:
-Parhús innan klasa 4 íbúðir 3,5 %
-Raðhús innan klasa 18 íbúðir 15,9 %
-Tvíbýlishús innan klasa 8 íbúðir 7,1 %
-Ótilgreind íbúðartýpa í klasa 14 íbúðir 12,4 %
DEILISKIPULAGSÁFANGI IV
Skipulagssvæðið liggur sunnan Helgafells. Það afmarkast til vesturs af grænu útivistarsvæði umhverfis Sauðhól, til norðurs af Miðsvæði Helgafells („Auga“) með fyrirhugaðri íbúðarbyggð, til suðurs af verndarsvæði Skammadalslækjar og til austurs af Skammadalsbraut.
Aðkoma að deiliskipulagssvæðinu er frá Vesturlandsvegi um Helgafellsveg að mið-svæði, sem kvíslast síðan til norðurs og suðurs. (Sjá kort sem sýnir afmörkun svæðisins, staðsetningu og gatnakerfi). Skipulags-skilmálar þessir gilda fyrir deiliskipulagsáfanga 4 (DSK 4) á skipulagssvæði í landi Helgafells.
Helsta markmið með skipulagi þessa svæðis er, að þar rísi fjölbreytt byggð sérbýlishúsa þar sem fólk á þess kost að velja milli mismunandi húsagerða og fá húsnæði við sitt hæfi. Lögð er áhersla á, að hönnuðir nýti sér möguleika á að móta fjölbreytta byggð t.d. með hliðrunum í grunnfleti og stöllun í lóðréttum flötum húsa til þess að nýta sem best möguleika hverrar lóðar. Æskilegt er þó að gæta ákveðins samræmis, t.d. í þakformi bygginga. Leggja skal áherslu á, að öll mannvirki á svæðinu séu hönnuð þannig að þau falli sem best að landi.
Heildarstærð Deiliskipulagsáfanga 4 er 11,8 ha. Alls verða á reitnum 72 íbúðahúsalóðir. Gert er ráð fyrir 113 nýjum íbúðareiningum á reitnum. Byggðafleki svæðisins er 8,4 ha. Heildarstærð nýrra lóða er 54,166 m². Hverfisverndarsvæði skammadalslækjar er 2,2 ha.
Nýting í Deiliskipulagsáfanga 4:
Í einbýlishúsum (E) er gert ráð fyrir 32 íbúðum = 28.3 %
Í raðhúsum (R) er gert ráð fyrir 31 íbúðum = 27.4 %
Í parhúsum (P) er gert ráð fyrir 40 íbúðum = 35.4 %
Í tvíbýlishúsum (T) er gert ráð fyrir 10 íbúðum = 8.9 %












