Sólberg
Hústýpur fyrir nýtt hverfi
Gerðar eru tillögur af fjórum mismunandi týpum að húsum, sem þó eru byggð að hluta á sömu formgerð og einingum. Húsin eru byggð í mikilli hæð sem mynda heilt hverfi. Ásýnd húsanna að ofanverðu er ætlað að verða sem minnst og með þeim hætti að neðri húsin virðist einungis á einni hæð frá götu, en að hæðirnar tvær verði þó að fullu nýtanlegar.
Hústýpurnar eru á lóðum sem eru að meðaltali 2,300m² Húsin neðan við götu eru 260m² og 345m² en húsin ofan við götu 275m² og 350m². Húsunum er ætlað að mynda eina hverfisheild, en gefa þó möguleika á breytileika innan hverrar hústýpu.
Project Design: samstarf með MUR arkitektum



