loading

Himinn og Haf

Himinn & haf
Nýtt veitingahús við Arnarnesvog

Gerðar hafa verið fyrstu tillögur að byggingu veitingahúss á þar til gerðri lóð við Arnarnesvog, staðsettri neðan við og norðvestan Vífilsstaðavegar. Þessar tillögur gera ráð fyrir um 740m² byggingu í tveim hlutum; 320m² aðstöðu og veitingasal annarsvegar, en einnig 420m² niðurskiptanlegum veislusal. Þjónustuverönd er framan við húsið að sjó. Leitast verður við að hanna bygginguna með sjálfbærni í huga. Efnisval er fundið með það í huga að byggingin falli vel inn í náttúruna og taki hægum breytingum, á sama tíma og henni er ætlað að glæða sjávarsíðuna lífi og standa stolt við hana. Upp úr umlykjandi torfhleðslu standa þök salanna, líkt og steinar í fjörunni. Þessir „steinar“ eru klæddir í vef sem tekur mynd sína af kennileiti og merki Garðabæjar.

Aðstöðubygging: þar sem fyrir er komið eldhúsi, salernum gesta og starfsmannaðstöðu, er á mörkum byggingarreitar til suðaustur og norðaustur upphaflegrar lóðar og snýr að Vífilsstaðavegi. Gert er ráð fyrir að þessi húshluti verði klæddur með íslenskum torfhleðslum upp veggi og á þaki, með opnunum eftir þörfum fyrir ljós og aðgengi. Á sitt hvorum enda þessa byggingarhluta, er hann „skorinn“ og er þar gert ráð fyrir að sú klæðning verði úr íslenskri blágrýti hleðslu. Gert er ráð fyrir að þessi byggingarhluti verði með um 3,6 metra þakhæð. Útgönguleið er ein um útvegg, en þrjár að veitingasal. Gert er ráð fyrir að starfsmenn verði um átta til tíu og hefur skilyrðum vinnueftirlits um aðstöðu starfsmanna.

Útsvæði: Gert er ráð fyrir að aðalaðkoma sé frá nærliggjandi bílastæðum og opnast byggingin að þessari aðkomu með snúningi veitingasalarins. Einnig er aðkoma að húsinu norðanvert og af göngustíg þeim sem liggur meðfram sjávarsíðunni. Er gert ráð fyrir að veröndum sé skipt upp í hluta, þar sem hjól og vagnar eru geymdir á steinklæddum veröndum, en að veitingahúsgestir geti setið á timburklæddum veröndum, sem upp úr standa sjávargrjót, sem brjóta upp veröndina og tengja hana við nærliggjandi náttúru. í suðvesturhlutalóðarinnar og að næstu lóð er gert ráð fyrir nokkurri landmótun, sem umlykur steinverönd. Timburveröndin er tvískipt með einu þrepi, til að falla betur að landi, en einnig til að brjóta upp rýmin utan byggingarinnar. Gert er ráð fyrir að verandir hússins rúmi allt að 100 gesti.

Veitingasalur: er að mestu gluggarými að sjó, til að hafa útsýni sem mest, en eitthvað lokað á hliðum, m.a. til að takmarka hita- og kuldainnstreymi. Efri hluta þessa byggingarhluta er einnig ætlað að dampa sólarljós og þannig bæði byrtu og hita. Gert er ráð fyrir að þjónustubar veitingastaðarins verði í miðju rýminu, tengt eldhúsi þjónustuhlutans. Í miðju rýminu að sjónum er gert ráð fyrir setustofu, sem lækkar um tvö þrep, bæði til að bæta yfirsýn þeirra sem sitja aftar í veitingahúsinu, en einnig til að í „innrömmuðu“ útskoti á framhliðinni, sé hægt að tilla sér á veröndina, þó innanhúss sé. öðrum rýmum veitingahússins yrði skipt upp með þeim hætti að ekki væri um einn stóran matsal að ræða, heldur einingar með mismunandi móti. Aðgengi er frá tveim stöðum a húsinu, en einnig er opnun í framanverðu að veröndum hússins. Útgönguleiðir eru því fjórar. Með legu byggingarinnar framanverðrar, opnar hún útsýni frá aðliggjandi húsi út á voginn til norðurs. Gert er ráð fyrir að veitingasalurinn rúmi um 75 gesti. Gert er ráð fyrir að þessi hluti byggingarinnar verði eilítið hærri en þjónustubyggingin, allt að 6,5 metra efsta þakhæð, þannig að byrtu megi einnig fá um austur og vesturhluta hans.

Veislusalur: er gerður í framhaldi og í sama stíl og Veitingasalurinn. Torfhleðsla umlykur þennan byggingarhluta líkt og Veitingasalinn. Veislusalnum, sem hefur sér aðkomu aftan að byggingunni, er skipt í tvo hluta og eru því tvö þök sem standa upp úr torfhleðslunni. Efri þökin hafa þakhæðir allt að 5,8 metra. Salurinn getur verið nýttur sem ein heild fyrir 110 – 190 gesti, en einnig í tvennu lagi fyrir ólíkar samkomur á sama tíma. Setustofa er tengd inngangi í rýmin og er eldhús og bar tengdur þjónusturýmunum. Verandir eru framan við salina með útsýni yfir Arnarnesvoginn.

pdf
PDF skjal

Himinn og Haf

Flokkur

Þjónustubyggingar

Dagsetning

október 21, 2015

Viðskiptavinur

Deila þessu verki

Nauthóll

fyrra verk í flokknum: Þjónustubyggingar
lokið: 21 October 2015

Nánar

Sólberg

næsta verk í flokknum: Skipulag
lokið: 21 October 2015

Nánar